Heit gólfFá tilboð
Verkefni

Verkin okkar

Myndir og myndband úr verkum okkar — og það sem viðskiptavinir segja um vinnuna.

Úr verkum okkar

Myndir af verkum

Frá upphafi til enda

Sjáðu hvernig þetta er gert

Myndband úr einu af verkunum okkar — frá því að fræsingin hefst og þar til gólfhitalagnirnar eru komnar í rásirnar.

  • Rásir fræstar beint í gólfið sem fyrir er
  • HEPA-ryksuga tengd við fræsivélina
  • Gólfhitalagnir lagðar í rásirnar
Fá tilboð →
Reynslusögur

Viðskiptavinir segja frá

Heyrðu frá fólki sem hefur fengið gólfhita hjá okkur — hvernig var að eiga í viðskiptum við Heit gólf og hvernig útkoman reyndist.

Fá tilboð →
Verkin tala

Umsagnir viðskiptavina

„Sko ef einhvern vantar heitar lagnir eða flot á gólf heima hjá sér, þá eru þessir fáránlega fljótir, góðir og hagstæðir. Ég er ekki að segja þetta til þess að auglýsa þá, heldur bara massa sáttur kúnni, sem fór í milljón hringi með þetta áður en ég negldi þessa. Svo ef einhver vil spara sér tíma í að sigta úr torfinu þarna úti, þá mæli ég 100% með þeim.“

— Gísli Örn Garðarsson

„Ég vill þakka ykkur fyrir vel unnið verk og góða þjónustu. Þeir hjá Heitum Gólfum komu til mín og fræstu fyrir gólfhita á 102 fermetrum af efri hæðinni. Samskipti voru bæði fagmanleg og ánægjuleg ásamt því að allar tímasetningar stóðust. Tækjabúnaður er öflugur og var fræsingin ryklaus. Ég er ekki með 3ja fasa rafmagn og það var því mikill kostur að þeir nota eigin rafstöð í vinnubílnum og þurfa ekki að tengjast rafmagnskerfi hússins. Þeir voru mjög sveigjanlegir og tóku vel í sérþarfir viðskiptavinarins s.s. að hafa þéttara lagnabil við útveggi og að fræsa fyrir 17mm gólfhitarörum í stað þess sem venja er.“

— Skúli Guðmundsson

„Bestu þakkir fyrir frábæra þjónustu og fagleg vinnubrögð. Voru skotfljótir að fræsa og leggja hita í 70 fermetra og það ofan í grjótharða plötu. Það eru heldur engar ýkjur að húsið var töluvert hreinna þegar þeir voru búnir heldur en áður en þeir byrjuðu… með ólíkindum alveg… Ég gæti ekki verið sáttari og mæli 120% með þessu fyrirtæki.“

— Steindór Erlingsson
Frítt tilboð

Fáðu frítt tilboð

Tilboðið kostar ekkert og er án skuldbindingar. Sendu okkur fermetra og myndir af rýminu og við svörum yfirleitt samdægurs.

Fá tilboðeða hringdu í 430 8300Mán–fös 9:00–19:00
HringjaFá tilboð