Hvað er gólfhiti?
Gólfhiti er hitakerfi þar sem heitt vatn rennur um rör í gólfinu og hitar rýmið neðan frá. Hitinn dreifist jafnt um gólfflötinn í stað þess að streyma frá stökum ofnum, og rörin geta tengst hvaða gólfhitakerfi sem er.
Hvað er betra en að ganga um á volgu gólfi, hvað þá í votrýmum? Gólfhitinn er líka sniðug og hagkvæm lausn til að losa sig við ofnana og nýta veggina betur.





