Heit gólfFá tilboð
Gólffræsing

Fræsing fyrir gólfhita — nánast ryklaus

Við fræsum rásir fyrir gólfhitalagnir beint í steypt og flotuð gólf. Búnaðurinn okkar er með HEPA filter sem hreinsar allt að 99,7% af astma- og ofnæmisvaldandi ögnum úr rykinu.

Starfsmaður Heit gólf fræsir rásir fyrir gólfhita með HEPA-ryksugu tengda við vélina

Svona fer fræsingin fram

Rásirnar eru fræstar í núverandi gólf eftir lagnateikningu. Síðan eru gólfhitarörin lögð í rásirnar og kerfið tengt við hitakerfi hússins, en pípari klárar frágang.

Flest verk klárast á einum degi og við skilum rýmunum vel frá gengnum og þrifalegum.

Tækjabúnaður og þjónusta um allt land

Við erum búnir nýjustu tækjum og tólum í bransanum og með eigin rafstöð í vinnubílnum, svo þriggja fasa rafmagn á staðnum er ekki skilyrði. Þess vegna getum við unnið hvar sem er á landinu.

Sérstaða okkar

HEPA filter — nánast ryklaus fræsing

Ýmsar agnir á borð við myglu og sveppagró geta leynst í rykinu þegar eldri gólf eru fræst. Almennar síur hindra ekki þessar fínu agnir, sem eiga auðvelt með að berast milli rýma og í öndunarfærin okkar.

Búnaður okkar er búinn HEPA filter sem hindrar agnirnar og hreinsar allt að 99,7% af astma- og ofnæmisvaldandi ögnum úr rykinu. Þetta þýðir betri loftgæði á vinnusvæðinu, minni þrif og minna ónæði fyrir heimilisfólk — og Heit gólf hefur algjöra sérstöðu hvað þetta varðar á íslenskum markaði.

Nánari upplýsingar um HEPA filtera.

99,7%
astma- og ofnæmisvaldandi agnir hreinsaðar úr rykinu
Ferlið

Svona virkar þetta

Fjögur skref frá núverandi gólfi yfir í tilbúið gólf með hita — án þess að brjóta upp gólfplötuna.

  1. Starfsmaður Heit gólf fræsir rásir fyrir gólfhita með HEPA-ryksugu tengda við vélina
    01

    Fræsing

    Rásir eru fræstar beint í núverandi gólf með HEPA-síuðum búnaði.

  2. Gólfhitalagnir lagðar í fræstar rásir í stórum sal með gluggaröð
    02

    Gólfhitalagnir

    Gólfhitarör eru lögð í rásirnar eftir lagnateikningu.

  3. Gólfhitagrind með tólf rásum, rauðum og bláum, tengd við gólfhitalagnir
    03

    Tenging

    Gólfhitagrind og hitastýring sett upp og kerfið tengt við hitakerfi hússins.

  4. Nýflotað, gljáandi gólf í stofu — slétt og tilbúið undir gólfefni
    04

    Nýtt gólfefni

    Gólfið er tilbúið undir parket, flísar eða annað gólfefni.

Frá upphafi til enda

Sjáðu hvernig þetta er gert

Myndband úr einu af verkunum okkar — frá því að fræsingin hefst og þar til gólfhitalagnirnar eru komnar í rásirnar.

  • Rásir fræstar beint í gólfið sem fyrir er
  • HEPA-ryksuga tengd við fræsivélina
  • Gólfhitalagnir lagðar í rásirnar
Fá tilboð →
Verð

Hvað kostar gólfhiti hjá mér?

Færðu sleðann á stærð rýmisins og sjáðu áætlað verð fyrir fræsingu og gólfhitalagnir. Innifalið er akstur, vinnulaun, verkfæri og gólfhitalagnir.

Áætlunin er eingöngu til viðmiðunar og bindur hvorugan aðila. Nákvæmt verð fæst með tilboði.

m²
Áætlað verð án vsk.
400.000 kr.
80 m² × 5.000 kr./m² (fræsing)
Fá nákvæmt tilboð
Spurt & svarað

Algengar spurningar

Finnurðu ekki svarið? Hringdu í 430 8300 eða sendu fyrirspurn — við svörum yfirleitt samdægurs.

Í flestum tilfellum já — við fræsum í steypt og flotuð gólf. Sendu okkur myndir af rýminu og við metum það fyrir þig án kostnaðar.

Tengd þjónusta

Meira frá Heit gólf

Frítt tilboð

Fáðu frítt tilboð

Tilboðið kostar ekkert og er án skuldbindingar. Sendu okkur fermetra og myndir af rýminu og við svörum yfirleitt samdægurs.

Fá tilboðeða hringdu í 430 8300Mán–fös 9:00–19:00
HringjaFá tilboð