Heit gólfFá tilboð
Heit gólf ehf.

Persónuvernd

Hér kemur fram hvenær Heit gólf ehf. kann að miðla persónuupplýsingum þínum til þriðju aðila og hvernig vefurinn notar vafrakökur og auglýsingar.

Heit gólf ehf. kann að miðla persónuupplýsingum þínum til þriðju aðila, þ.e. til innheimtuaðila eða aðila sem sjá um upplýsingatækniþjónustu eða annars konar ráðgjöf fyrir hönd félagsins.

Persónuupplýsingar þínar kunna jafnframt að vera afhentar þriðja aðila að því marki sem heimilað er eða krafist á grundvelli viðeigandi laga eða reglna, s.s. til Ríkisskattstjóra eða annarra eftirlitsaðila. Það sama kann að eiga við sé afhendingar krafist á grundvelli dómsúrskurða eða reynist miðlun nauðsynleg þannig að félagið geti gætt hagsmuna sinna í ágreinings- eða dómsmálum.

Heit gólf ehf. mun þó ekki miðla persónuupplýsingum utan Evrópska efnahagssvæðisins nema slíkt sé heimilt á grundvelli viðeigandi persónuverndarlöggjafar, s.s. á grundvelli staðlaðra samningsskilmála, samþykki þíns eða auglýsingar Persónuverndar um ríki sem veita persónuupplýsingum fullnægjandi vernd.

Vafrakökur og auglýsingar

Vefurinn notar vafrakökur og sambærilega tækni frá Google og Meta (Facebook) til að mæla notkun vefsins og árangur auglýsinga.

Skráð er hvernig þú notar vefinn, m.a. hvaða síður þú skoðar, hvort þú sendir tilboðsbeiðni og hvort þú smellir á símanúmer eða staðsetningu.

Meta Pixel les einnig upplýsingar sem þú slærð inn í form á vefnum, t.d. netfang, símanúmer, nafn og staðsetningu, og sendir Meta þær í tættu formi (hash) til að tengja heimsóknina við Meta-aðgang. Þetta gerist óháð hakinu í tilboðsforminu.

Við notum þessar upplýsingar til að mæla notkun vefsins og árangur auglýsinga, til að birta auglýsingar frá okkur þeim sem hafa skoðað vefinn (endurmarkaðssetning) og til að ná til fólks sem svipar til þeirra sem hafa sýnt okkur áhuga. Auglýsingarnar birtast m.a. á Google, YouTube, Facebook og Instagram.

Ef þú kemur á vefinn af auglýsingu og sendir tilboðsbeiðni sendum við Google og Meta upplýsingar um beiðnina til að mæla árangur auglýsinganna: auðkenni auglýsingasmellsins, netfang og símanúmer í tættu formi (hash) og hvernig beiðnin gengur, þ.e. að hún hafi borist, að tilboð hafi verið sent og að það hafi verið samþykkt. Upphæðir eru ekki sendar.

Grundvöllur þessarar vinnslu eru lögmætir hagsmunir Heit gólf ehf. af því að mæla árangur auglýsinga sinna. Þú getur andmælt vinnslunni hvenær sem er með því að senda okkur póst á heitgolf@heitgolf.is, og þá sendum við Google og Meta ekkert um beiðnina.

Google og Meta vinna einnig með þessar upplýsingar samkvæmt eigin persónuverndarstefnum og upplýsingarnar kunna að fara utan Evrópska efnahagssvæðisins. Markaðsfyrirtæki sem vinnur fyrir Heit gólf ehf. hefur aðgang að þessum kerfum og sér um auglýsingarnar fyrir hönd félagsins.

HringjaFá tilboð