Heit gólfFá tilboð
Um okkur

Við leggjum hita að fótum þér

Metnaður og fagmennska eru okkar einkunnarorð. Við sérhæfum okkur í einu — að fræsa fyrir gólfhita og leggja gólfhitalagnir — og mottó okkar er að klára verkin á einum degi.

Starfsmaður Heit gólf leggur flot í stofu með arni
Um okkur

Fólkið á bak við Heit gólf

Heit gólf sérhæfir sig í einu: að fræsa fyrir gólfhita og leggja gólfhitalagnir. Eigandi fyrirtækisins er Þór Þorsteinsson múrarameistari og hjá honum starfa vanir menn — sömu andlitin frá tilboði til loka.

Löggiltur pípari starfar einnig hjá fyrirtækinu, svo við getum gengið frá lögnunum og klárað verkið.

Við erum með eigin rafstöð í vinnubílnum, þurfum ekki þriggja fasa rafmagn á staðnum og vinnum hvar sem er á landinu.

Traust

Af hverju Heit gólf?

Metnaður og fagmennska eru okkar einkunnarorð. Við erum búnir nýjustu tækjum og tólum í bransanum, skilum rýmunum vel frá gengnum og þrifalegum, og mottó okkar er að klára verkin á einum degi svo sem minnst óþægindi skapist fyrir viðskiptavininn.

  • Sérhæfing í fræsingu fyrir gólfhita
  • Öflugur tækjabúnaður og eigin rafstöð
  • Nánast ryklaus framkvæmd með HEPA filter
  • Flest verk kláruð á einum degi
  • Vandaður frágangur og þrifaleg skil
  • Þjónusta um allt land
Framúrskarandi fyrirtæki 2024DanfossCaterpillar
Vinnubíll Heit gólf merktur „Við leggjum hita að fótum þér“
Sérstaða okkar

HEPA filter — nánast ryklaus fræsing

Ýmsar agnir á borð við myglu og sveppagró geta leynst í rykinu þegar eldri gólf eru fræst. Almennar síur hindra ekki þessar fínu agnir, sem eiga auðvelt með að berast milli rýma og í öndunarfærin okkar.

Búnaður okkar er búinn HEPA filter sem hindrar agnirnar og hreinsar allt að 99,7% af astma- og ofnæmisvaldandi ögnum úr rykinu. Þetta þýðir betri loftgæði á vinnusvæðinu, minni þrif og minna ónæði fyrir heimilisfólk — og Heit gólf hefur algjöra sérstöðu hvað þetta varðar á íslenskum markaði.

Nánari upplýsingar um HEPA filtera.

99,7%
astma- og ofnæmisvaldandi agnir hreinsaðar úr rykinu
Frítt tilboð

Fáðu frítt tilboð

Tilboðið kostar ekkert og er án skuldbindingar. Sendu okkur fermetra og myndir af rýminu og við svörum yfirleitt samdægurs.

Fá tilboðeða hringdu í 430 8300Mán–fös 9:00–19:00
HringjaFá tilboð