Heit gólf ehf. kann að miðla persónuupplýsingum þínum til þriðju aðila, þ.e. til innheimtuaðila eða aðila sem sjá um upplýsingatækniþjónustu eða annars konar ráðgjöf fyrir hönd félagsins.

Persónuupplýsingar þínar kunna jafnframt að vera afhentar þriðja aðila að því marki sem heimilað er eða krafist á grundvelli viðeigandi laga eða reglna, s.s. til Ríkisskattstjóra eða annarra eftirlitsaðila. Það sama kann að eiga við sé afhendingar krafist á grundvelli dómsúrskurða eða reynist miðlun nauðsynleg þannig að félagið geti gætt hagsmuna sinna í ágreinings- eða dómsmálum.

Heit gólf ehf. mun þó ekki miðla persónuupplýsingum utan Evrópska efnahagssvæðisins nema slíkt sé heimilt á grundvelli viðeigandi persónuverndarlöggjafar, s.s. á grundvelli staðlaðra samningsskilmála, samþykki þíns eða auglýsingar Persónuverndar um ríki sem veita persónuupplýsingum fullnægjandi vernd.